Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella, Puerto Banús
REF 4260371
Lúxus einbýlishús staðsett á Puerto Banús svæðinu, þekktasta svæði Marbella við Costa del Sol. Stutt er í fjölbreytt úrval þjónustu, góða veitingastaði, lúxusverslanir, næturklúbba, íþróttamiðstöðvar, stórkostlegar sandstrendur og virta golfvelli. Borgin Marbella er í 10 mínútna akstursfjarlægð og Málaga og alþjóðaflugvöllurinn eru í aðeins 45 mínútna fjarlægð. Hin fullkomna staðsetning til að njóta Miðjarðarhafslífsstíls í stórkostlegu umhverfi.
Nútímaleg einbýlishús með 6 svefnherbergjum, byggð á yfir 2.000 m2 lóðum og á þremur hæðum, auk þakverandar. Húsin bjóða upp á opna jarðhæð sem sameinar eldhús, borðstofu og setustofu með stórum gluggum. Rúmgott svæði sem tengist veröndinni, garðinum og sundlaugarsvæðinu. Einnig má finna en-suite svefnherbergi, gestasalerni og yndislega verönd með gosbrunni á þessari hæð. 4 svefnherbergi, öll með sér baðherbergi, eru á fyrstu hæð. Hjónaherbergið er einnig með sér fataherbergi og verönd. Kjallaranum er skipt upp í ýmis svæði, þar af er heilsulindin glæsilegust. Þar má finna 24m2 upphitaða sundlaug, gufubað, tyrkneskt gufubað og búningsklefa. Það sem eftir er af kjallaranum er svefnherbergi, kvikmyndasalur, stór setustofa, líkamsræktarstöð, eldhús, tvö gestasalerni, þvottahús og tvær geymslur. Bílskúrinn hefur pláss fyrir 4-6 bíla, eftir gerð.
Í einhverjum eignum og eftir byggingarstigi, er hægt að sérsníða skipulag á jarðhæð, með því að bæta við auka svefnherbergi eða skrifstofu.
Útisvæðin eru jafn vandlega hönnuð og innri rýmin í húsunum, með stórri og fallegri verönd, garði og einkasundlaugarsvæði á jarðhæð. Þakveröndin er svo tilvalin til að njóta fallegs sjávarútsýnis.
Hágæðafrágangur er á eignunum og þeim fylgja eldhústæki, gólfhiti í öllu húsinu, lyfta fyrir 6 manns frá kjallara uppá þakverönd, arinn, tvær saltvatnslaugar, snjallheimiliskerfi, foruppsetning fyrir sjálfvirkt vökvunarkerfi í garðinum og nuddpottur á þakveröndinni.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella, Puerto Banús
Puerto Banús er lúxus bátahöfn og ein sú mikilvægasta í heimi. Hún er hluti af Nýju Andalúsíu (Marbella) í Málaga héraði. Puerto Banús hefur frá opnun, í maí 1970, orðið ein stærsta skemmtimiðstöð við Costa del Sol og öðlast frægð og viðurkenningu á heimsmælikvarða.
Landfræðileg staðsetning og heimsóknir fjöldamargra heimsfrægra, gera staðinn að aðlaðandi áfangastað á sumrin. Samkvæmt tölum frá bæjarstjórn Marbella, heimsækja nálægt 5 milljónum manna, Puerto Banús á ári hverju.
Við götur Puerto Banús má finna hátískuverslanir með merkjavöru eins og Louis Vuitton, Dior, Gucci, Versace, Bvlgari og Dolce & Gabbana. Á staðnum eru að auki nokkur stórglæsileg lúxus hótel.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum