Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
Þessi eign er ekki í boði
REF 3910329
Íbúðakjarni í fyrstu línu við golfvöllinn í La Cala Golf Resort. Glæsilegur kjarni í fallegu náttúrulegu umhverfi sem hefur, auk golfvallarins, félagsklúbb, veitingastaði, hótel og heilsulind. Húseigendur fá sérstakt afsláttarkort fyrir afnot af ýmissri þjónustu. Kjarninn er aðeins 10 mínútur frá Cala de Mijas, sem býður upp á meira úrval þjónustu og fjölbreytt úrval af innlendum og alþjóðlegum veitingastöðum. Malaga flugvöllur er í aðeins 30 mínútna fjarlægð.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina.
Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum