Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 145252
Ný einbýlishús á svæði Pueblo Bravo í Ciudad Quesada, íbúðahverfi í 10 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Guardamar og með allri þjónustu allt árið um kring.
Í boði eru 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi, tvö þeirra innaf svefnherbergjum. Húsin eru prýdd Miðjarðarhafsstíl að utan en nýtískuleg að innan. Val er milli tveggja mismunandi módela, annars vegar húss með opnu rými, tvöfaldri lofthæð og 45 m2 þakverönd og hins vegar hefðbundnari hönnun með stórum svölum á efri hæðinni. Einkasundlaug með fossi fylgir öllum húsum, afgirtur garður og með öðru módelinu fylgir sturta með heitu og köldu vatni á þakveröndinni.
Í þessum kjarna eru fáanlegar nokkrar eignir tilbúnar til afhendingar. Fáðu upplýsingar um kjarnann.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum