Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 1933655
Nútímaleg einbýlishús á svæðinu Doña Pepa, í Ciudad Quesada. Í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð frá frábærum ströndum Guardamar og Torrevieja og nálægt öllum þægindum, eins og stórmarkaði, bönkum, apótekum, heilsugæslustöð o.s.frv. Í næsta nágrenni, í þjóðgarði La Mata, má finna hjóla- og gönguleiðir og svæði tilvalin fyrir lautarferð. Húsin eru á tveimur hæðum og byggð á lóðum yfir 300m2, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Á jarðhæð er að finna stórt opið svæði með stofu og borðstofu sem tengjast fullbúnu eldhúsinu. Stofan opnast út á verönd sem er yfirbyggð að hluta og sundlaugarsvæðið. Hjónaherbergi og aðskilið baðherbergi eru einnig á jarðhæðinni. Á efri hæð eru tvö en-suite svefnherbergi, með aðgangi að rúmgóðri verönd útfrá hjónaherberginu, með útsýni yfir sundlaugarsvæðið. Stigi með góðri lofthæð, liggur uppá þakverönd, þar sem þú njóta má yndislegs útsýnis yfir La Mata lónið. Útisvæðið hefur flísalagða verönd, einkasundlaug, hellulagða innkeyrslu og garð í kringum húsið.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum