Einstök einbýlishús með 3 svefnherbergjum og einkasundlaug í Benimar, Rojales

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales

frá 74,674,750 kr
frá 497.500€

3

3

136.25 m2

286.95 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4936422

Nýr kjarni einbýlishúsa í Benimar, sem er frábært íbúðahverfi á milli Rojales, Benijofar og Ciudad Quesada. Bæirnir bjóða allir upp á mikið úrval af þjónstu, s.s. matvöruverslanir, búðir, banka, apótek, kaffihús og veitingastaði, auk heilsugæslu og skóla. Svæðið er stutt frá þeirri afþreyingu sem er í boði fyrir ferðamenn í Ciudad Quesada, Guardamar del Segura, og Torrevieja en þar ber hæst vatnsrennibrautargarður, verslunarmiðstöðvar, íþróttaviðburðir og fleira. Hinar frábæru strendur Guardamar, La Mata og Torrevieja eru í um 10-15 mínútna akstursfjarlægð frá kjarnanum. Svæðið er vel tengt vegakerfinu sem gerir það að verkjum að auðvelt er að komast á milli staða í Alicante héraði og einungis 40 mínútur eru á alþjóðaflugvöllinn í Alicante.

Kjarninn býður upp á einbýlishús á 2 hæðum með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Jarðhæðin er með opnu skipulagi og er eldhúsið með eyju. Úr stofu og borðstofu opnast út á verönd þar sem svæðið er að hluta yfirbyggt með pergólu, einkasundlaug og garði. Á hæðinni er einnig tvöfalt svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Hin tvö svefnherbergin eru á 2. hæð og eru bæði með sér baðherbergi og aðgengi út á verönd. Hjónaherbergið er með fataherbergi. Ef komið er nægilega snemma að kaupunum er hægt að láta útbúa þakverönd sem er 37m2.

Húsin verða byggð úr úrvals byggingarefnum og í þeim verður tengi fyrir loftkælingu, gólfhiti á baðherbergjum, fullbúnir fataskápar, rafknúnar gardínur í svefnherbergjum, mynd-dyrasími, þjóafavörn, tengi fyrir sólarsellur, einkasundlaug og bílastæði með hleðslustöð fyrir rafbíla.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales

Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.

Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada

  • 29 km
  • 20 km
  • 16 km
  • 7 km
  • 13 km
  • 4 km

Nánari upplýsingar um Ciudad Quesada - Rojales

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.