Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 3415120
Nýr kjarni einbýlishúsa í Ciudad Quesada, frábæru íbúðahverfi við suður Costa Blanca. Húsin njóta öll glæsilegs útsýnis. Kjarninn er staðsettur nálægt verslanakjarna með úrvali af börum og veitingastöðum og dagleg þjónusta, svo sem stórmarkaðir, bankar og apótek eru í næsta nágrenni. La Marquesa golfvöllurinn er í aðeins 5 mínútna fjarlægð og stórbrotnar strendur Guardamar og La Mata eru í 10 mínútna akstursfjarlægð.
Húsin eru ýmist á einni eða tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum og rúmgóðum kjallara. Aðalhæð beggja módela samanstendur af rúmgóðri opinni stofu, eldhúsi og borðstofu og alrýmið opnast út á stóra verönd (sem er að hluta til yfirbyggð) með einkasundlaug. Einnig má finna gestasalerni og hjónaherbergi með sér baðherbergi á þessari hæð.
Húsið á einni hæð er með 2 en-suite svefnherbergjum í kjallaranum, auk auka stofu.
Húsið á tveimur hæðum hefur 2 en-suite svefnherbergi og verönd á efri hæð og kjallaranum er skipt í stóra stofu með eldhúsi og aðskildu svæði, sem hægt er að nota eftir þörfum, t.d. sem líkamsræktarstöð, heimaskrifstofu eða auka svefnherbergi.
Í kjallaranum er einnig þvottahús og veituherbergi, aðgangur að litlum garði og lokaðri bílageymslu með plássi fyrir tvo bíla.
Húsunum fylgir loftkæling, eldhústæki, gólfhiti í baðherbergjum, innri LED-lýsing og einkasundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum