Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Campoamor
REF 1699302
Glæsilegar eignir á fallegu svæði Campoamor, aðeins 500 metra frá ströndinni og umkringd alls kyns þjónustuaðilum. Aðeins sex hús eru í boði, öll með 4 svefnherbergjum. Húsin munu seljast hratt.
Byggð á 500 m2 lóðum, með stórum veröndum, görðum, eigin sundlaug, bílskúr í kjallara sem búinn er lyftu sem liggur upp allar 3 hæðir húsanna, alla leið upp á þakveröndina. Á jarðhæð er alrýmið, með opnu eldhúsi, borðstofu og stofu, ásamt einu svefnherbergi með baðherbergi en á hæðinni er einnig gestasalerni. Á annarri hæð húsanna eru þrjú svefnherbergi til viðbótar og tvö baðherbergi. Í stórum kjallaranum/bílskúrnum er þvottahús og baðherbergi.
Eignirnar eru í aðeins 500 m2 fjarlægð frá ströndinni og í göngufjarlægð má finna bari og veitingastaði, ásamt hinni vinsælu verslunarmiðstöð Zenia Boulevard. Borgin Torrevieja er enn fremur í aðeins nokkurra km fjarlægð og flugvellirnir í Murcia og Alicante í viðráðanlegri fjarlægð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Campoamor
Campoamor hefur að geyma eitt fegursta landslag á allri Orihuela Costa. Hið fullkomna jafnvægi milli stranda og furuskóganna, sem ná allt frá Sierra Escalona til Dehesa de Campoamor, gera að verkum að þetta er hinn fullkomni staður til að finna fasteign nálægt ströndu í náttúrulegu umhverfi.
Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Campoamor
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum