Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja
REF 4725905
Einbýli í íbúðabyggð sem er á milli miðbæjarins í Torrevieja og La Mata-strandarinnar. Á báðum þessum stöðum er að finna úrval þjónustu og afþreyingar, þar á meðal matvöruverslanir, heilsugæslur, banka, apótek, sem og fjölda veitingastaða og tómstunda. Hin frábæra verslunarmiðstöð Habanera, þar sem úrval skemmtana og kvikmyndahús er að finna, er í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá húsinu. Stórkostlegar strendurnar í Torrevieja og La Mata eru í innan við 10 mínútna fjarlægð. Hverfið er vel tengt N332-hraðbrautinni og því er auðvelt að komast á önnur mikilvæg svæði, eins og Orihuela Costa og Guardamar á 15 mínútum, og á flugvöllinn í Alicante á 40 mínútum.
Ótrúleg íbúð á þremur hæðum auk sólstofu, með fjórum svefnherbergjum og þremur baðherbergjum á 1012 fm lóð. Neðsta hæðin samanstendur af rúmgóðri stofu og sjálfstæðu eldhúsi/borðstofu. Stórir gluggar eru í stofu og eldhúsi þaðan sem útgengt er á hálf yfirbyggð verönd. Á þessari hæð er einnig stórt svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Á miðhæð eru tvö stór svefnherbergi, baðherbergi og hjónaherbergi með sérbaðherbergi með tvöfaldri lofthæð. Úr hjónaherberginu og öðru svefnherberginu er útgengt á svalir þaðan sem stórkostlegt útsýni er. 125 fm kjallarinn er eitt opið rými sem hægt er að nýta á margs konar hátt, eins og sem leikjasal, líkamsrækt, vínkjallara eða hvað það sem eiganda hugnast. Stiginn tengir allar hæðir hússins, frá kjallara upp í sólstofu.
Húsin eru einnig mjög tilkomumikil að utanverðu. Þau eru hönnuð sérstaklega til að njóta Miðjarðarhafslífsins. Verönd við stofu og eldhús er 50 fm að stærð og liggur hún að stórum garði sem hægt er að hanna eftir eigin höfði. Sundlaugin er með „eyju“ þar sem hægt er að njóta sólar allan daginn. Á lóðinni er einni padel-völlur.
Eign úr hágæða efni og fyrsta flokks frágangi, eldhús full útbúið heimilistækjum, LED-lýsing, innbyggðir skápar, einkasundlaug og bílskúr í kjallara.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja
Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem horfir alltaf til sjávar, borg sem er stútfull af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllum sem vilja njóta lífsstílsins við Miðjarðarhafið. Borgin býr að einstöku loftslagi sem byggir á nálægð sjávar og staðsetningu hennar á Íberíuskaganum sem slíkum og þessi staðreynd býður okkur uppá meðalhita um 18ºC og meira en 300 sólskinsdaga á ári.
Það fyrsta sem vekur athygli í Torrevieja er umhverfið, þar sem tvö saltlón standa upp úr, annað bleikt en hitt grænt en vötnin eru hluti af þjóðgörðum Lagunas de La Mata og Torrevieja.
Þegar talað er um borgina er við hæfi að nefna tvennt; sjó og salt. Salt er hinn sanni uppruni þessa bæjar. Allt fram á miðja 20. öld var saltiðnaður aðalatvinnuvegur íbúa Torrevieja og í dag er Torrevieja einn helsti saltframleiðandi Spánar með um 600.000 tonna framleiðslu að meðaltali á ári.
Strandlengja Torrevieja er löng, eða samtals 14 km, þar sem finna má fjöldann allan af þéttbýlisströndum, víkum og skotum til að kæla sig í, en mörgum þeirra má hreinlega líkja við paradís.
Strendur Torrevieja eru vottaðar samkvæmt gæðastöðlum og umhverfisstjórnun. Torrevieja hefur þannig gæðastimpil sem hún má vera stolt af.
Mismunandi hefðbundnar hátíðir eru haldnar allt árið í borginni, svo sem páskagöngurnar eða sjógangan til heiðurs La Virgen del Carmen þann 16. júlí.
Maí hátíðin er líka mjög vinsæl meðal íbúa og gesta, með dæmigerðum básum, vínum, matargerð og tónlistarviðburðum. Torrevieja sameinar skemmtun og menningu fullkomlega.
Borgin tekur á móti þér opnum örmum og þú ert velkominn á fallegum stað fullum af lífi, menningu og skemmtun.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum