Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa
REF 4600776
Samstæðan býður upp á tveggja hæða einbýlishús með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, þakverönd og einkasundlaug. Á neðri hæð er opið rými með stórum glerhurðum út á verönd. Einnig er hjónaherbergi með útgengi út á verönd og baðherbergi á neðri hæð. Tvö svefnherbergi (eitt en-suite) eru á fyrstu hæð, bæði með útgengi út á verönd. 35,8m2 þakveröndin er kjörinn staður til að njóta sólarinnar allt árið um kring.
Einbýlishúsin eru byggð með gæðafrágangi og þeim fylgir loftkæling með foruppsetningu fyrir Airzones (svæðastýringu), gólfhiti á baðherbergjum, rafmagnsgluggahlerar, garður með gervigrasi og/eða plöntum, saltvatnslaug með útisturtu og bílastæði á lóð. Það fer eftir gerð, hvort stæðið er fyrir einn eða tvo bíla.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa
Orihuela Costa er breið strandlengja á Suður Costa Blanca með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi.
Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á Orihuela Costa sem býr því yfir fullkomnum innviðum og þjónustu. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar er einnig að finna eina 5 golfvelli, sjúkrahús, og nokkra alþjóðlega skóla. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í nálægð golfvallar. Hér eru þær byggðir í Orihuela Costa þar sem finna má fasteignir frá okkur:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum