Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Lo Romero Golf
REF 4375303
Nýr kjarni nútíma einbýlishúsa í íbúðahverfi Lo Romero Golf, í Pilar de la Horadada. Golfvöllurinn er fullkomlega staðsettur, í aðeins 7 mínútna akstursfjarlægð frá miðbænum og 12 mínútur frá stórkostlegum ströndum Torre de la Horadada. Pilar de la Horadada býður upp á mikið úrval af þægindum, eins og matvöruverslunum, verslunum, börum og veitingastöðum, ásamt banka, apótekum og heilsugæslustöð. Bærinn býður einnig uppá glæsilega íþróttaaðstöðu, með tennis- og paddlevöllum, fótboltavöllum, innisundlaug, frjálsíþróttabrautum og líkamsræktarstöð. Þar sem bæði Murcia og Alicante flugvellir eru í innan við klukkutíma akstursfjarlægð er þetta kjörinn staður fyrir dvöl í fríum eða fyrir varanlega búsetu.
Kjarninn samanstendur af einbýlishúsum með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum af mismunandi gerðum; tveggja hæða einbýlishúsum með eða án einkasundlaugar og einbýlishúsum á einni hæð með þakverönd og einkasundlaug. Húsin eru með opinni stofu, eldhúsi og borðstofu í stóru rými með stórum gluggum sem opnast út á verönd. Öll svefnherbergi eru með en-suite baðherbergi.
Hús án einkasundlaugar hafa beinan aðgang að sameiginlegu svæði, með stórri sundlaug, hvíldarsvæðum og grillsvæði.
Gæðafrágangur er á eignunum og þær eru afhentar með foruppsetningu fyrir loftkælingu, gólfhita á baðherbergjum, rafmagnsgluggahlerum í setustofunni og svefnherbergjunum, innbyggðum fataskápum og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Lo Romero Golf
Lo Romero Golf svæðið er yfir 1.25 milljón fermetra stórt og þar með er talinn 18 holu golfvöllur, par 72, með klúbbhúsi, æfingasvæði, íþrótta- og tómstundaaðstöðu, hóteli og verslunum.
Stórkostlegt útsýni yfir hafið, frábær staðsetning, aðeins 5 km frá fallegum ströndum Torre de la Horadada og hönnun svæðisins með breiðum götum og fallegum furutrjám, hafa gert þennan golfvöll og hverfið sem honum tilheyrir að einum vinsælasta stað á svæðinu síðan opnað var í janúar 2008.
Frábært framboð er á fasteignum á svæðinu, en einbýlishús af ýmsum gerðum ráða þar ríkjum.Stórkostlegt útsýni yfir hafið, frábær staðsetning, aðeins 5 km frá fallegum ströndum Torre de la Horadada og hönnun svæðisins með breiðum götum og fallegum furutrjám, hafa gert þennan golfvöll og hverfið sem honum tilheyrir að einum vinsælasta stað á svæðinu síðan opnað var í Janúar 2008.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum