Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 119770
Glæsilegt einbýli við Villamartin golfvöllinn, einstakt hús með flottum byggingarstíl undir arabískum áhrifum. Lóðin er yfir 2.000 m2 að stærð, með fallegum görðum og beinum aðgangi að golfvellinum. Hjarta þessarar eignar er garðurinn í miðju hússins sem skreyttur er í Andalúsíu stíl og undir glæsilegum glerkúpli sem veitir dagsbirtunni inn. Þetta hús er einnig áberandi fyrir rúmgóð herbergi og stórkostlegt sjávarútsýni frá verönd. Frá garðinum í miðju hússins er aðgangur að upphitaðri sundlaug, virkilega fallegu rými með fallegum flísum og stórum gluggum sem skapa friðsælt andrúmsloft líkt og í heilsulind. Í stuttu máli, hús með mikinn persónuleika sem vekur hrifningu hjá þeim sem það skoða.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum