Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 906395
Nýr kjarni staðsettur nálægt golfvellinum í Villamartin, en á svæðinu er gott úrval þjónustu. Ströndin La Zenia er í aðeins 5 mínútna fjarlægð með bíl sem og Las Ramblas Golf og Campoamor golfvöllurinn.
Húsin eru á tveimur hæðum með þakverönd. Öll hafa 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi, með möguleika á að fjarlægja 1 svefnherbergi, sem gerir stofuna stærri. Jarðhæðin einkennist af opinni hönnun og þaðan er aðgangur að veröndinni og garðinum. Á lóð er bílastæði og mögulegt er að koma fyrir lítilli sundlaug fyrir aukakostnað. Kjarnanum fylgir sameiginlegt sundlaugarsvæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum