Raðhús með 3 svefnherbergjum, sólstofu og einkasundlaug í San Javier

Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago

frá 37,074,700 kr
frá 247.000€

3

2

125.87 m2

88.95 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4688011

Ný byggð með nútímalegum raðhúsum í San Javier, á ströndinni í Murcia. Þorpið San Javier hefur allt til alls, úrval þjónustu eins og matvöruverslanir, búðir, bari og veitingastaði, banka, apótek og heilsugæslu. Á svæðinu er einnig að finna úrval innlendra og alþjóðlegra framhaldsskóla, sem og sjúkrahús. Strandbæirnir Santiago de la Ribera, San Pedro del Pinatar og Los Alcázares eru einungis í tíu mínútna akstursfjarlægð, og þar er hægt að njóta dásamlegra strandanna í Mar Menor. Fyrir útivistarunnendur er mikið um gönguleiðir í nálægum fjöllum, nokkrir golfvellir í grennd og ýmsar vatnaíþróttir, þar á meðal köfun og siglingaklúbburinn í San Pedro del Pinatar. Þetta er kjörinn staður, bæði til að búa á og fyrir fríið, með einstöku úrvali þjónustu allt árið um kring og einungis hálftíma frá flugvellinum í Murcia.

Í boði eru raðhús á tveimur hæðum, með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, auk einkasólstofu. Hönnun neðri hæðarinnar er nútímaleg og hagnýt, með stofu í opnu rými þaðan sem útgengt er að sundlaugarsvæðinu. Einnig er stórt svefnherbergi og baðherbergi á þessari hæð. Á efri hæðinni eru hin tvö svefnherbergin, með sameiginlegu baðherbergi og er annað þeirra með svölum. Stiginn inni liggur að rúmgóðri 42 m2 sólstofu, með sumareldhúsi og þvottavélaraðstöðu.

Í byggðinni eru íbúðir af öllum stærðum og gerðum sem hægt er að hanna eftir eigin höfði. Þær eru með loftræstingu um stokk, eldhús fullútbúin heimilistækjum, háu morgunverðarborði, innbyggðum skápum, sundlaug með útisturtu og sumareldhúsi í sólstofu.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago

San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið. 

 Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.

  • 26 km
  • 13 km
  • 26 km
  • 3 km
  • 20 km
  • 16 km

Nánari upplýsingar um San Javier - Santiago

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.