Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 3054178
Nýr íbúðakjarni í Pilar de la Horadada, sunnarlega við Costa Blanca en þar má finna alla nauðsynlega þjónustu og aðeins 3 km eru að fallegum ströndum Torre de la Horadada.
Í boði eru íbúðir með tveimur eða þremur svefnherbergjum, ýmist eignir á jarðhæð með garði eða efri hæð með þakverönd. Allar íbúðir hafa tvö baðherbergi með hita í gólfum. Hönnunin er björt, stofa og borðstofa opin inní eldhús en eldhústæki fylgja með í kaupunum. Verönd er við allar eignir. Í kjarnanum er sundlaug, garður og bílastæði fyrir íbúa.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum