Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, La Veleta
Þessi eign er ekki í boði
REF 1985760
Nútíma einbýlishús í La Veleta, Torrevieja, aðeins 300m frá ströndinni. Öll nauðsynleg dagleg þjónusta er í göngufæri, en verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og Zenia Boulevard, með verslunum, börum/veitingastöðum og afþreyingu, eru í 10 mínútna akstursfjarlægð. Hverfið er nálægt þjóðveginum og vel tengt við helstu svæði, svo sem Orihuela Costa og Torre de la Horadada.
Í boði eru tveggja hæða einbýlishús, með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og þakverönd. Hátt er til lofts og stórir gluggar prýða stofuna sem er létt og rúmgóð og tengist fullbúnu eldhúsi og borðstofu. Úr stofunni má ganga út á verönd og sundlaugarsvæði. Á jarðhæð er 1 svefnherbergi og sér baðherbergi. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi, hvort um sig með baðherbergi og fataherbergi. Úr hjónaherbergi má ganga út á verönd með útsýni yfir sundlaugina. Frá stórri þakverönd má njóta útsýnis til sjávar, grilla og slaka á í faðmi fjölskyldu og vina.
Öll húsin eru tilbúin fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, gólfhiti er á baðherbergjum, útilýsing fylgir ásamt sundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, La Veleta
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum