Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
Þessi eign er ekki í boði
REF 3078070
Staðsett í glæsilegu íbúðahverfi, með frábæru útsýni yfir sjó, í Benissa við norður Costa Blanca. Fjölbreytt úrval af daglegri þjónustu er að finna á svæðinu og úrval af frábærum veitingastöðum í nærliggjandi borgum, Benissa, Calpe og Moraira. Margs konar íþróttastarfsemi, svo sem golf, siglingar, tennis, paddle og hestamennska er ennfremur í næsta nágrenni. Svæðið er friðsælt og umkringt náttúru og stutt er að aka að La Fustera ströndinni.
Einbýli á tveimur hæðum, byggt á 802m2 lóð, með 3 en-suite svefnherbergjum og sér sólarverönd. Jarðhæð samanstendur af rúmgóðri opinni stofu, með tvöfaldri lofthæð, eldhúsi og borðstofu og opnast út á verönd sem er yfirbyggð að hluta til ásamt sundlaugarsvæði. Hjónaherbergi og sér sólarverönd eru staðsett á efri hæð.
Húsin bjóða upp á val um frágang og efni og gera má ýmsar breytingar gegn aukakostnaði. Öllum eignum fylgir loftkæling/hitun, gólfhiti sem keyrður er með gasi, eldhústæki, innbyggðir fataskápar og BBQ svæði á veröndinni. Lagt er fyrir þjófavarnarkerfi og bílastæði á lóð fylgir hverju húsi.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
Á milli hafs og fjalla er Benissa að finna, fallegt þorp á norður Costa Blanca en á svæðinu eru paradísarvíkur með kristaltæru vatni, fullkomnar fyrir íþróttir eins og köfun, seglbretti eða seglbáta. Einnig er hægt að njóta gönguferða í Benissa sem er umkringt fjöllum og hlíðum.
Benissa er talinn vera einn af þessum útvöldu áfangastöðum við Miðjarðarhafsströndina og fasteignaúrvalið ber sannarlega merki þess, því einkennandi eru lúxuseinbýli. Skoðið fasteignaframboðið í Benissa.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum