Costa Blanca Norður, Marina Alta, Calpe
Þessi eign er ekki í boði
REF 3071158
Lúxus einbýlishús staðsett í Calpe, innan við 200 m frá ströndinni. Aðeins nokkrar mínútur tekur að aka í miðbæ Calpe þar sem hægt er að finna öll nauðsynleg þægindi, svo sem matvöruverslanir, apótek, verslanir, bari og veitingastaði. Að auki er minni verslanakjarni í nágrenninu, þar sem nálgast má daglegar nauðsynjar. Húsið er nálægt AP7 hraðbrautinni og svæðið þannig vel tengt Alicante og Valencia.
Húsið er á tveimur hæðum og hefur 4 svefnherbergi og 3 baðherbergi. Aðalhæðin samanstendur af stórri og bjartri stofu, borðstofu og eldhúsi. Þvottahús og geymsla, gestasalerni og stórt en-suite svefnherbergi er einnig að finna á þessari hæð. Hægt er að nálgast veröndina og sundlaugina með úr stofunni. Önnur þrjú tveggja manna svefnherbergi (eitt en-suite með fataherbergi) er að finna á efri hæð. Herbergin hafa aðgang að stórri verönd með útsýni yfir sundlaugina. Njóta má stórfenglegs sjávarútsýnis frá báðum hæðum.
Húsinu fylgir loftkæling/hitun, gólfhiti, fataskápar, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Calpe
Calpe er, ásamt Denia, ein af megin borgunum á Norður Costa Blanca. Eitt af einkennum Calpe og táknrænt fyrir Costa Blanca er Peñón de Ifach, klettur sem teygir sig 332 m. upp til himins af ströndinni. Peñón de Ifach er heimili ýmissa fuglategunda og hefur verið þjóðgarður frá 1987.
Calpe er alsett gæðalegum ströndum og víkum sem þúsundir gesta hafa notið á síðustu árum. Ferðaiðnaðurinn hefur breytt þessari hafnarborg í eina af meginkjörnum búsetuferðaþjónustunnar á Costa Blanca. Það má sannreyna á ótrúlegu úrvali þjónustu og fasteigna við sjávarsíðuna. Fasteignakaupandinn hefur úr mörgu að velja, allt frá íbúðum að einstökum einbýlum. Skoðið fasteignirnar á Norður Costa Blanca
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum