Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
REF 5075387
Þetta hús hefur verið hannað þannig að það tekur mið af landslaginu og er á 4 hæðum, með 4 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum sem hvert er inn af herbergi, og stendur á lóð sem er 1.058m2. Stofan er á neðstu hæðinni með opnu skipulagi fyrir eldhús og borðstofu og glerhurð sem opnast út á stóra verönd með útieldhúsi, sundlaug og garði. Önnur og þriðja hæðin eru með 2 svefnherbergi hvor. Efsta hæðin er svo inngangurinn í húsið með lyftu og stiga, auk bílastæða fyrir utan við götuhæð.
Allar hæðir bjóða upp á stórkostlegt sjávarútsýni annað hvort frá veröndunum eða frá stórum svefnherbergisgluggum. Allir útgangar opnast út á verönd eða grænt svæði þar sem hægt er að njóta milda loftlagsins við Miðjarðarhafið.
Húsinu fylgir loftkæling, gólfhiti, fullbúið eldhús, sundlaug með útisturtu, grillsvæði, þvottaherbergi, lyfta og bílastæði. Aukalega er hægt að breyta öllum innréttingum að vild og fá auka lyftu, ef vilji er fyrir því.Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
Á milli hafs og fjalla er Benissa að finna, fallegt þorp á norður Costa Blanca en á svæðinu eru paradísarvíkur með kristaltæru vatni, fullkomnar fyrir íþróttir eins og köfun, seglbretti eða seglbáta. Einnig er hægt að njóta gönguferða í Benissa sem er umkringt fjöllum og hlíðum.
Benissa er talinn vera einn af þessum útvöldu áfangastöðum við Miðjarðarhafsströndina og fasteignaúrvalið ber sannarlega merki þess, því einkennandi eru lúxuseinbýli. Skoðið fasteignaframboðið í Benissa.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum