Lúxuseinbýli með einkasundlaug og stórkostlegu útsýni yfir hafið í Cumbre de Sol

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol

Þessi eign er ekki í boði


3

3

542.00 m2

932.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4635384

Einbýli með einstakri hönnun í hverfi sem er innan íbúabyggðarinnar í Cumbre de Sol, mitt á milli Jávea og Moraira. Í íbúabyggðinni er að finna úrval þjónustu eins og verslunarkjarna, bari, veitingastaði og alþjóðlegan framhaldsskóla. Í nágrannaborgunum tveim er hægt að sækja aðra þjónustu, eins og stærri verslanir, banka, apótek og frábært úrval skemmtana, meðal annars Michelin-veitingastaði. Fyrir unnendur íþrótta má nefna úrval golfvalla, gönguleiða, útreiðaskóla og siglingaklúbb.  Náttúrulegri staðarhættir tryggja útsýni yfir hafið og stórkostleg útsýni yfir að Calpe og Benidorm, sem er einstaklega fallegt á kvöldin.

Í boði er einstakt einbýli með 3 svefnherbergjum með baði, á lóð sem nær yfir 932m2. Efri hæðin samanstendur af stórri stofu með eldstæði og borðstofu sem nær að eldhúsin, sem er að hluta til opið. Úr stofunni er útgengt út á stórkostlega verönd með grillsvæði og sundlaug sem virðist ná út í hið óendanlega. Þessi staður er fullkominn til að njóta Miðjarðarhafslífsins. Byggingin er hönnuð með tilliti til ótrúlegs útsýnis yfir hafið úr öllum herbergjum og svölum. Undir aðalveröndinni er að finna aðra verönd fyrir meira næði. Eldhúsið er með eyju í miðju og aðgang að þvottahúsi. Gestasalerni er á efri hæð og einnig tilkomumikill bíósalur. Á neðri hæð, þar sem aðalinngangurinn er, eru 3 svefnherbergi, þar á meðal eitt með fataherbergi og stórum svölum. 

Eignin býr yfir fyrsta flokks hágæða eiginleikum, eins og loftræstingu um stokk og gólfhita með persónulegum stillingum í öllu húsinu, innbyggð heimilistæki í eldhúsi, rafknúnum gardínum í svefnherbergjum, Smart Home-kerfi, grillsvæði, einkasundlaug með útisturtu, bílastæði fyrir tvo bíla og hleðslustöð fyrir rafbíla. Mögulegt er að sérsníða innréttingar, eftir því hvaða stigi byggingin er á.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol

Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.

Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana

Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.

Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.

Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.

  • 77 km
  • 69 km
  • 70 km
  • 1 km
  • 68 km
  • 32 km

Nánari upplýsingar um Cumbre del Sol

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.