Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
REF 5245861
Nútímalegt einbýlishús, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, á tveimur hæðum auk kjallara, byggt á 847m2 lóð. Húsið hefur verið hannað með stórum gluggum sem skapa björt og rúmgóð svæði sem njóta góðs af því að snúa í suður. Jarðhæðin skiptist í tvö rými sem aðskilin eru með innri stiga. Sameinuð setustofa og borðstofa opnast út á stóra, að hluta yfirbyggða, verönd og sundlaug með nuddpotti. Eldhúsið, með eyju, opnast út á minni, að hluta yfirbyggða verönd, með útieldhúsi, grillaðstöðu og gestasalerni. Öll 3 svefnherbergin eru á fyrstu hæð, þar af er hjónaherbergið með stóru baðherbergi með frístandandi baðkari og sérverönd. Hin 2 svefnherbergin (annað með baðherbergi inn af) eru með sameiginlegri verönd með útsýni yfir sundlaugina. Á hæðinni er einnig aðalinngangur hússins, með bílastæði fyrir framan. Í kjallaranum er 29m2 fjölnotaherbergi með tveimur yfirbyggðum veröndum.
Tilkomumikil útisvæðin geta notið sín á öllum hæðum lóðarinnar, frá veröndum út af svefnherbergjum, stóru veröndinni og sundlaugarsvæðinu á aðalhæðinni, svo og tveimur yfirbyggðum veröndunum, í kjallarahæð.
Þetta einbýlishús verður byggt með úrvals efnum og frágangi og mun innihalda fullkomlega uppsetta 'spilt' loftkælingu, gólfhita í öllu húsinu, innbyggð eldhústæki, innbyggða fataskápa, rafmagns gardínur, inni- og úti LED lýsingu, myndavélasímkerfi, öryggiskerfi og Smart Home kerfi með raddgreiningu. Til að lækka orku- og vatnsnotkun verða einnig settar upp sólarsellur og hleðslustöð fyrir rafbíla, auk innlendra plantna og trjáa í garðinum, með vökvunarkerfi.Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.
Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana
Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.
Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.
Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum