Lúxuseinbýli með stórkostlegu útsýni yfir hafið, kjallara og sundlaug í Cumbre del Sol

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol

Þessi eign er ekki í boði


3

3

542.00 m2

823.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4676254

Glæsilegt einbýli með undurfögru útsýni yfir hafið í einstakri íbúabyggð í Cumbre del Sol, á milli borganna Jávea og Moraira, á Costa Blanca Norte. Öruggur og rólegur staður í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá Playa Moraig og fallegu ströndunum Calas Llebeig og Los Tiestos. Byggðin tilheyrir afgirtu hverfi og er í nágrenni við ýmisskonar þjónustu, þar á meðal verslunarkjarna með matvörubúðum, hárgreiðslustofu, apóteki, börum, veitingastöðum og alþjóðlegum framhaldsskóla. Auk þess er mikið úrval íþróttaaðstaða eins og tennis- og padelvellir, reiðvöllur og ýmsar gönguleiðir. Þökk sé framúrskarandi vegakerfi er hægt að komast fljótt og örugglega á nálæga ferðamannastaði, eins og Moraira sem er í 10 mínútna fjarlægð, Jávea í 15 mínútna fjarlægð og Calpe í 30 mínútna fjarlægð. Flugvöllurinn í Alicante er í um það bil klukkutímafjarlægð. 

Í boði er glæsilegt einbýli á 823 m2 lóð, á tveimur hæðum, með þremur svefnherbergjum, þremur baðherbergjum og kjallara sem hægt er að hanna eftir eigin höfði. Stórkostlegt útsýni yfir hafið, yfir fallega ströndina og sjóndeildarhring Calpe með hinu óviðjafnanlega Peñón de Ifach. Inngangur að húsinu er á efri hæðinni þar sem einnig er opinn bílskúr fyrir tvö ökutæki. Gengið er í gegnum rúmgott hol að tveimur svefnherbergjum, sem bæði eru með baðherbergjum, rúmgóðum skápum og svölum. Á neðri hæð er að finna bjart, opið rými, með borðstofu, nútímalegu eldhúsi og stofu með stórum gluggum, þaðan sem útgengt er út í garðinn. Á þessari hæð er einnig gestasalerni og annað svefnherbergi með sérbaðherbergi og fataherbergi. Stórar svalir, að hluta til yfirbyggðar, einkasundlaug og garðurinn gera að verkum að þetta er fullkominn staður til að njóta sólar og dásamlegs veðurfarsins á Costa Blanca. Kjallarinn er eitt stórt rými með aðgangi að svölum, og er hægt að hanna hann eftir þörfum eiganda, útbúa gestaíbúð, bíósal, leikfimiaðstöðu eða hvað það sem hugurinn girnist. 

Eignin er byggð úr fyrsta flokks efni, eldhúsið er fullbúið með hágæða heimilistækjum, loftvarmakerfi, hita í gólfum, loftræstingu um stokk með hitastilli, rafknúnum gardínum, innri og ytri lýsingu, viðvörunarkerfi með vídeói sem tengist snjalltæki, snjallkerfi, rafknúnu hliði fyrir ökutæki, ljósspennukerfi fyrir húsnæði sem nota 5,5 kw, einkasundlaug, vökvunarkerfi fyrir garðinn og hleðslustöð fyrir rafbíla.

Einstakt hús með undurfögru útsýni yfir hafið, fullkomið til að njóta lífsins við Miðjarðarhafið.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • yfirbyggt bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol

Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.

Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana

Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.

Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.

Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.

  • 95 km
  • 69 km
  • 70 km
  • 1 km
  • 68 km
  • 32 km

Nánari upplýsingar um Cumbre del Sol

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.