Costa Blanca Norður, Marina Alta, Denia
Þessi eign er ekki í boði
REF 3065545
Raðhúsakjarni í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni í El Vergel, við norður Costa Blanca. Í göngufæri frá öllum daglegum nauðsynjum, og stuttri akstursfjarlægð frá borginni Denia. Góð vegatenging er við Alicante og Valencia, þökk sé tveimur hraðbrautum en báðar borgirnar búa að alþjóðlegum flugvöllum.
Kjarninn samanstendur af tveggja hæða raðhúsum, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Björt stofa með stórum gluggum, borðstofa og amerískt eldhús, rúmgóð verönd, hjónaherbergi og baðherbergi eru á jarðhæð. Á efri hæð eru tvö tveggja manna svefnherbergi og baðherbergi. Svalir á efri hæð má nálgast af stigapalli þegar komið er upp. Öll húsin eru klár fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun og hafa eigið bílastæði á lóð.
Sameiginlegt svæði með sundlaug fyrir fullorðna og börn.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Denia
Borgin Denia er við norður Costa Blanca og er einn af helstu áfangastöðum ferðalanga við spænsku Miðjarðarhafsströndina. Þar er að finna ótrúlegt framboð á þjónustu og höfn þar sem mikið er um að vera, sérstaklega á sumrin, þökk sé tengingu við vinsælu eyjuna Ibiza.
Í Denia er 20 km. strönd sem skiptist í tvennt. Til norðurs má finna breiðar sandstrendur eins og Almadraba eða Les Deveses. Til suðurs einkenna Les Rotes fjöldi víka, sem flestar eru settar steinum, og göngustígar. Frá því á sjöunda áratugnum hefur Denia verið einn vinsælasti kostur kaupenda og fjárfesta sem kjósa að búa við ströndina og því er fasteignaframboðið mikið, sérstaklega á íbúðum við ströndina. Skoðið fasteignirnar við ströndina í Denia
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum