Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Þessi eign er ekki í boði
REF 3070228
Nýr kjarni einbýlishúsa með stórbrotnu útsýni yfir sjóinn í Finestrat, vinsælu svæði við Costa Blanca Norður. Hinn frægi Campana Golf er í 5 mínútna fjarlægð og verslunarmiðstöðin La Marina, með öllum nauðsynlegum daglegum þægindum, er aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð. Frábærar strendur Benidorm, skemmtigarðar og dægradvöl eru einnig í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Hin fullkomna staðsetning fyrir náttúruunnendur sem þó er í nágrenni stórborgar.
Húsin eru byggð á lóðum milli 500m2 og 539m2 og hafa 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi. Á jarðhæð má finna opna stofu, borðstofu og eldhús, auk hjónaherbergis, baðherbergis og þvottahúss. Stórir gluggar í eldhúsi og stofu opnast út á rúmgóða verönd sem er að hluta yfirbyggð og tilvalin sem útiborðstofa. Á efri hæð eru 2 en-suite svefnherbergi, með aðgangi að verönd með útsýni yfir garðinn og infinity sundlaugina. Fallegt útsýni yfir hafið er bæði frá garði og og verönd á efri hæð.
Einbýlishúsin eru byggð með hágæða efnum og bjóða upp á ýmsar breytingar eftir óskum, svo sem að byggja þakverönd eða kjallara/bílskúr. Öll einbýlishúsin eru tilbúin til uppsetningar á loftkælingu/hitun, lýsing fylgir, eldhústæki fylgja og garður með svokallaðri infinity sundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Finestrat er einn af bæjunum í Alicante-héraði sem sameinar kjarna svæðisins: sjó og fjöll.
Finestrat þýðir fjall, vegna þess að söguleg miðbær bæjarins liggur við rætur hins glæsilega Puig Campana, sem er tvímælalaust sá tindur sem hefur mestan karakter í öllu héraðinu. Finestrat er líka Miðjarðarhafið; fleyglaga bæjarsvæðið nær allt að ströndinni við Cala Morales, almennt þekkt sem Cala de Finestrat.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum