Einbýlishús á einni hæð með 3 svefnherbergjum og stórkostlegu sjávarútsýni í Polop

Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía

frá 64,328,400 kr
frá 428.000€

3

3

94.79 m2

322.97 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5751789

Nýr kjarni einbýlishúsa í íbúðahverfi í Polop, á norðurhluta Costa Blanca. Svæðið er umkringt náttúru og er við rætur Alicante-fjallanna, með stórkostlegu sjávarútsýni yfir Miðjarðarhafið. Það er ýmis þjónusta og þægindi í stuttri akstursfjarlægð, eins og stórmarkaðir, verslanir, barir og veitingastaðir, auk stórrar verslunarmiðstöðvar. Fyrir íþróttaáhugamenn eru nokkrir frábærir golfvellir, göngu- og hjólaleiðir, íþróttamiðstöð sveitarfélagsins með fótboltavöllum, og tennis- og padelvöllum. Þá er hægt að stunda vatnsíþróttir á frábærum ströndum Altea og Benidorm. Svæðið státar einnig af úrvali af skemmtigörðum eins og Terra Mítica og Aqualandia, að ógleymdri afþreyingunni sem er í boði á Benidorm, eins og krár, veitingastaðir og næturklúbbar.

Kjarninn býður upp á nútímaleg einbýlishús með 2 eða 3 svefnherbergjum, byggð á lóðum frá 309m2-480m2, fáanleg á einni hæð með þakverönd, eða á tveimur hæðum. Allar gerðir húsanna eru með opna setustofu, borðkrók og opið eldhús, með stórum gluggum sem opnast út á yfirbyggða verönd/pergólu og garðsvæði. Veröndin nýtur stórbrotins sjávarútsýnis og er tilvalin til að njóta tempraða loftslagsins á Costa Blanca. Hjónaherbergin í öllum húsunum eru með sér baðherbergi. Húsin sem eru á einni hæð eru einnig með þakverönd.

Húsin eru byggð með gæðaefnum og munu innihalda loftræstikerfi, eldhústæki, innbyggða skápa og rafmagnsgardínur, gólfhita, myndbandssímkerfi, garð með gervigrasi, bílastæði á lóðinni með foruppsetningu fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla, og sjálfvirkt hlið.

Það fer eftir byggingarstigi ,og gegn aukakostnaði, er hægt að gera ákveðnar uppfærslur, eins og láta útbúa sundlaug við húsins, allt eftir stærð garðsins, setja upp heitan pott á þakveröndinni á húsunum sem eru á einni hæð, eða láta útbúa kjallara.

See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía

Polop er lítið þorp í Alicante-héraði í um 20 mín. fjarlægð frá stöndinni og Benidorm.

Fyrir þá sem leita að fasteign á Costa Blanca, á rólegum stað og í náttúrulegu umhverfi, en um leið stutt frá allri þjónustu, er Polop fullkominn kostur. Hér má sjá fasteignir í Polop:

  • 50 km
  • 43 km
  • 43 km
  • 9 km
  • 41 km
  • 7 km

Nánari upplýsingar um Polop-La Nucía

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.