Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Þessi eign er ekki í boði
REF 3468458
Glæsileg einbýlishús staðsett í hinum fallega bæ Polop, við norður Costa Blanca, umkringd fallegu náttúrulegu umhverfi, með víðáttumiklu útsýni yfir Miðjarðarhafið og sjóndeildarhring Benidorm. Polop og nærliggjandi bær La Nucía bjóða uppá daglega þjónustu, svo sem stórmarkaði, apótek, bari og veitingastaði. Svæðið er einnig þekkt fyrir frábæra íþrótta- og tómstundaaðstöðu, svo sem golf, skemmtigarða og vatnaíþróttir á ströndinni.
Húsin eru með þakverönd og byggð á 400m2-431m2 lóðum. Í þeim eru 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi (eitt en-suite), opið eldhús, borðkrókur og stofa sem opnast út á verönd með pergólu og sundlaugarsvæði. Veröndin felur einnig í sér grillaðstöðu og geymslu, auk bílastæða fyrir allt að tvo bíla á lóðinni. Njóta má útsýnisins yfir fjöllin, Miðjarðarhafið og sjóndeildarhring Benidorm frá rúmgóðri þakveröndinni.
Húsinu fylgir foruppsetning fyrir loftræstikerfi, rafmagnsgardínur, gólfhiti á baðherbergjum, sér geymsla, einkasundlaug með LED lýsingu og steinsteypt hellulagt bílastæði á lóðinni.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Polop er lítið þorp í Alicante-héraði í um 20 mín. fjarlægð frá stöndinni og Benidorm.
Fyrir þá sem leita að fasteign á Costa Blanca, á rólegum stað og í náttúrulegu umhverfi, en um leið stutt frá allri þjónustu, er Polop fullkominn kostur. Hér má sjá fasteignir í Polop:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum