Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
REF 4037347
Nýr raðhúsakjarni í Cala de Mijas, svæði sem liggur 5 km frá ströndinni og er umkringt náttúrulegu fjallaumhverfi. Aðlaðandi svæði við sjávarsíðuna með töff börum við ströndina, strandklúbbum og fjölbreyttu úrvali vatnaíþrótta. Svæðið er vel tengt helstu borgum, þökk sé góðu vegakerfi, en komast má til Fuengirola á 10 mínútum, Marbella á 15 mínútum, Málaga og flugvallarins á aðeins 30 mínútum, auk fjölmargra golfvalla í næsta nágrenni.
Tveggja hæða raðhús með 3 eða 4 svefnherbergjum og stórum garði með möguleika á einkasundlaug. Stórar glerhurðar hleypa náttúrulegu ljósi inn og gera innri rýmin björt og bjóða jafnframt upp á fallegt útsýni yfir Miðjarðarhafið. Í raðhúsunum er loftkæling og eldhústæki fylgja.
Raðhúsin eru í lokuðum kjarna sem býður upp á sameiginlega saltvatnslaug, líkamsræktarstöð, vinnurými og garðsvæði.Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina.
Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum