Parhús með garði og sundlaug í Los Balcones, Torrevieja

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja

frá 60,790,500 kr
frá 405.000€

3

2

84.54 m2

225.45 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4479153

Nýr kjarni eigna í Los Balcones, íbúðahverfi í Torrevieja. Svæðið er milli Torrevieja og Orihuela Costa og mjög nálægt Laguna Rosa og aðeins 10 mínútur frá strönd. Los Balcones býður upp á úrval þjónustu, eins og matvöruverslanir, bari og veitingastaði, auk háskólasjúkrahússins í Torrevieja. Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð og fjórir virtir golfvellir eru í innan við 15 mínútna akstursfjarlægð. AP-7 og A-7 hraðbrautirnar gera það auðvelt að heimsækja helstu borgir svæðisins og flugvellir Murcia og Alicante eru báðir eru í 45 mínútna fjarlægð.

Kjarninn samanstendur af eignum með 2 svefnherbergjum af ólíkum gerðum. Velja má um parhús með garði, þakverönd og einkasundlaug, jarðhæðaríbúðir á tveimur hæðum með stórum veröndum og efstu hæðar íbúðir á tveimur hæðum með þakverönd. Einnig er möguleiki á að bæta við þriðja svefnherberginu. Frábærar eignir með hvítum framhliðum í Miðjarðarhafsstíl og stórum gluggum sem hleypa náttúrulegri birtu inn. Allar eignirnar bjóða upp á opna stofu, eldhús og borðstofu í stóru rými með aðgangi að útisvæði. Hjónaherbergi eru með sér baðherbergi.

Íbúðir á jarðhæð eru með fullbúnum kjallara með verönd sem hleypir inn birtu, þvottahúsi, baðherbergi og útgengi á aðra verönd. Íbúðir á efstu hæð eru með yfir 70m2 þakverönd, tilvalið til að njóta sólskinsins. Parhúsin eru með 10m2 einkasundlaug og garði með gervigrasi.

Gæðafrágangur er á eignunum og þær eru afhentar með foruppsetningu fyrir loftkælingu, innbyggðum fataskápum, þjófavarnarkerfi og bílastæði. Íbúðunum fylgir einnig geymsla. 

Kjarninn er lokaður og hefur stóra garða með sameiginlegri sundlaug fyrir fullorðna og annarri fyrir börn, WIFI á sundlaugarsvæðinu, sólbaðsaðstöðu með gervigrasi, líkamsræktarsvæði utandyra, leiksvæði fyrir börn og bílastæði fyrir reiðhjól.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • bílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja

Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem horfir alltaf til sjávar, borg sem er stútfull af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllum sem vilja njóta lífsstílsins við Miðjarðarhafið. Borgin býr að einstöku loftslagi sem byggir á nálægð sjávar og staðsetningu hennar á Íberíuskaganum sem slíkum og þessi staðreynd býður okkur uppá meðalhita um 18ºC og meira en 300 sólskinsdaga á ári.

Það fyrsta sem vekur athygli í Torrevieja er umhverfið, þar sem tvö saltlón standa upp úr, annað bleikt en hitt grænt en vötnin eru hluti af þjóðgörðum Lagunas de La Mata og Torrevieja.

Þegar talað er um borgina er við hæfi að nefna tvennt; sjó og salt. Salt er hinn sanni uppruni þessa bæjar. Allt fram á miðja 20. öld var saltiðnaður aðalatvinnuvegur íbúa Torrevieja og í dag er Torrevieja einn helsti saltframleiðandi Spánar með um 600.000 tonna framleiðslu að meðaltali á ári.

Strandlengja Torrevieja er löng, eða samtals 14 km, þar sem finna má fjöldann allan af þéttbýlisströndum, víkum og skotum til að kæla sig í, en mörgum þeirra má hreinlega líkja við paradís.

Strendur Torrevieja eru vottaðar samkvæmt gæðastöðlum og umhverfisstjórnun. Torrevieja hefur þannig gæðastimpil sem hún má vera stolt af.

Mismunandi hefðbundnar hátíðir eru haldnar allt árið í borginni, svo sem páskagöngurnar eða sjógangan til heiðurs La Virgen del Carmen þann 16. júlí.

Maí hátíðin er líka mjög vinsæl meðal íbúa og gesta, með dæmigerðum básum, vínum, matargerð og tónlistarviðburðum. Torrevieja sameinar skemmtun og menningu fullkomlega.

Borgin tekur á móti þér opnum örmum og þú ert velkominn á fallegum stað fullum af lífi, menningu og skemmtun.

  • 59 km
  • 8 km
  • 22 km
  • 4 km
  • 2 km
  • 3 km

Nánari upplýsingar um Torrevieja

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.