Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 3062588
Nýr einbýlishúsakjarni, í göngufæri við ströndina við Mar Menor, Costa Cálida, og nálægt allri nauðsynlegri daglegri þjónustu. Santiago de la Ribera býður upp á eitthvað fyrir alla, allt frá vatnasporti og náttúrufegurð til verslana. Svæðið er vel tengt við aðrar helstu borgir og svæði eins og Murcia og Orihuela Costa Nýi Murcia International flugvöllurinn er í aðeins 40 mínútna akstursfjarlægð.
Húsin eru byggð á 177m2 lóðum, eru á tveimur hæðum og hafa 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi. Á jarðhæð er fullbúið eldhús og opin stofa, með stórum glerhurðum sem opnast út á verönd og sundlaugarsvæðið. Á sömu hæð er svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi, hvort um sig með aðgangi að stórri, 18.50m2, verönd. Annað herbergjanna hefur eigið baðherbergi og fataherbergi. Innifalið í verði er loftkæling, eldhústæki, lokaður bílskúr með rafknúinni hurð og útieldhús. Sérsníða má eignina með innan ákveðinna marka.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum