Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 3922700
Nýr íbúðakjarni, aðeins 200 metra frá hinni frábæru strönd í Santiago de la Ribera, við Costa Cálida. Kjarninn er einnig í göngufæri frá margs konar daglegri þjónustu, matvöruverslunum, börum og veitingastöðum. Finna má úrval af íþróttastarfi, með þremur golfvöllum í næsta nágrenni og vatnaíþróttaframboði við Mar Menor. Bærinn er vel tengdur öðrum helstu svæðum, eins og Orihuela Costa, Murcia og Alicante, þökk sé AP7 hraðbrautinni.
Íbúðirnar eru með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og af tveimur mismunandi gerðum; jarðhæð með stórri verönd eða efri hæð með rúmgóðri þakverönd. Opin stofa, borðkrókur og eldhús eru í íbúðunum og úr alrými er gengið útá verönd. Öll hjónaherbergin eru en-suite.
Íbúðirnar á jarðhæðinni eru með tveimur rúmgóðum veröndum, hvor um sig með lítilli geymslu, og bílastæði með vélknúnu hliði.
Íbúðirnar á efri hæðinni eru með stórri 60 fermetra þakverönd, þar sem finna má útihúseldhús, rafmagnsgrill, pergólu, útisturtu og uppsetningu fyrir nuddpott.
Klassískur Miðjarðarhafsblær er á kjarnanum, með bogum og hvítum veggjum og garðsvæði í strandarstíl með stórri sundlaug.
Allar íbúðirnar eru afhentar með loftkælingu, gólfhita á baðherbergjum, eldhústækjum, fataskápum og LED-lýsingu.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum