Íbúðir með 3 svefnherbergjum og verönd í San Pedro del Pinatar

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

frá 35,873,900 kr
frá 239.000€

3

2

78.93 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4984963

Nýr kjarni í hjarta San Pedro del Pinatar. Þessi strandbær er staðsettur á landsmærum Costa Blanca og Costa Cálida, og býður upp á mjög mikla þjónustu á báðum stöðum, s.s. matvöruverslanir, búðir, bari, veitingastaði, banka, apótek, alþjóðlega og almenna skóla, og heilsugæslu. Hinar stórkostlegu strendur Mar Menor eru í um 1,5 km fjarlægð með miklu úrvali vatnasports. Fyrir útivistarfólk eru fjöldi golfvalla í um 20 km radíus frá svæðinu, auk fallegra gönguleiða og hjólastíga. Flugvöllurinn í Murcia er í um 30 mínútna akstursfjarlægð og flugvöllurinn í Alicante er í um klukkustundarfjarlægð.

Nútímalegar íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, fáanlegar í mismunandi útgáfum; jarðhæðir og miðhæðir með rúmgóðri verönd, þakíbúðir á einni eða tveimur hæðum með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með opnu skipulagi og borðstofu sem opnast út á verönd. Öll hjónaherbergin eru með baðherbergi innaf. Sumar þakíbúðirnar eru með hjónaherbergið á þakhæðinni.

Íbúðunum fylgir loftkæling, öll eldhústæki, gólfhiti á baðherbergjum, LED inni- og útilýsing, rafknúnar gardínur, geymsla og bílastæði með hleðslutengi fyrir rafbíla. Þakíbúðunum fylgir útieldhús, rafmagns grill, pergola, salerni og útisturta, auk tengis fyrir heitan pott á þakveröndinni.

Með tilliti til staðsetningar, verðs og þess sem fylgir með íbúðunum verður að segja að um sé að ræða afar gott fjárfestingartækifæri.

Kjarninn er alveg lokaður með frábærum sameiginlegum svæðum, þar á meðal stórri “infinity” sundlaug með hitapumpu, græn svæði með gervigrasi og bílakjallara.
See more...

  • verönd
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
  • sameiginleg bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.

Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.

  • 30 km
  • 8 km
  • 30 km
  • 2 km
  • 16 km
  • 12 km

Nánari upplýsingar um San Pedro - Lo Pagan

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.