Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 2959652
Nýr íbúðakjarni í Lo Pagan, íbúðahverfi við San Pedro, Costa Cálida. Miðbærinn er í göngufæri, með úrvali af daglegum nauðsynjum. Tilvalið svæði fyrir íþróttaáhugamenn, með golfvöllum í nágrenninu, sem og vatnaíþróttastarfsemi sem í boði er við strendur Mar Menor. Þökk sé AP7 hraðbrautinni er kjarninn í innan við klukkustundar akstursfjarlægð frá helstu borgum, Alicante, Murcia og Cartagena.
Í boði eru tvær tegundir eigna; íbúð á jarðhæð með stórri verönd eða íbúð á efri hæð með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, auk opinnar stofu, borðstofu og fullbúnu eldhúsi. Útieldhús fylgir eignunum en þar er lagt fyrir þvottavél. Sameiginlegt svæði inniheldur stóra sundlaug með svæði til afslöppunar ásamt garði. Íbúðirnar snúa í ýmsar áttir.
Eignirnar eru afhentar tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu, fullbúnu eldhúsi, útieldhúsi og bílastæði utanhúss.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum