Lúxus einbýli í fyrstu línu við golfvöll og með útsýni til hafs í Mijas Costa

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

frá 289,753,040 kr
frá 1.930.400€

4

4

357.00 m2

1165.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4221608

Nútímaleg lúxus einbýlishús með glæsilegu útsýni yfir hafið og golfvöll í Mijas Costa. Frábær staðsetning, innan við 15 mínútur frá ströndinni, Cala de Mijas og Fuengirola. Miramar verslanamiðstöðin er í aðeins 6 mínútna fjarlægð, með verslunum, kvikmyndahúsi, veitingastöðum og matvöruverslunum en svæðið býr einnig að nokkrum golfvöllum, hestabúgarði og annarri íþrótta- og tómstundaaðstöðu. Fuengirola dýragarðurinn og vatnagarðurinn eru fullkomnir fyrir fjölskylduferðir og eru í aðeins 10 mínútna fjarlægð. Þökk sé A-7 og AP-7 hraðbrautunum má komast til annarra mikilvægra ferðamannasvæða við Costa del Sol, eins og Marbella, á 25 mínútum eða til Málaga og flugvallarins á 30 mínútum.

Glæsilegar eignir, byggðar á lóðum milli 1.155 og 1.186 m2, á 3 hæðum, með 4 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum. Einbýlishúsin eru byggð í hlíð og hönnuð til að falla að náttúrulegum halla landsins, og bjóða þannig uppá sjávarútsýni. Húsin hafa stórt, opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi og aðgangi að risastórri verönd og stórbrotnu útsýnislaugarsvæði. Á þessari hæð er einnig svefnherbergi og baðherbergi. Á hæðinni fyrir neðan eru 3 en-suite svefnherbergi, öll mjög rúmgóð og með útgengi á verönd. Kjallarahæðin skiptist í nokkur rými sem hægt er að aðlaga að vild, svo sem útbúa gestaíbúð, heimaafþreyingu/bíó, vínkjallara, líkamsræktaraðstöðu eða annað.

Gæðaefni eru notuð við frágang en þar má nefna Porcelanosa fyrir gólfefni. Loftkæling, gólfhiti, eldhústæki, Bandalux rúllugardínur, Technal glerhandrið, VTouch Pro snjallkerfi, stórbrotin útsýnislaug og bílastæði á lóð fyrir nokkra bíla fylgja.

Kjarninn er staðsettur á golfvallarsvæði, sem veitir eigendum aðgang að allri þjónustu sem í boði er, eins og klúbbhúsinu, líkamsræktarstöðinni og frábærum veitingastað.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina. 

Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi. 

  • 30 km
  • 4 km
  • 4 km
  • 3 km
  • 4 km
  • 0 km

Nánari upplýsingar um Mijas Costa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.