Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 3922569
Ný íbúðasamstæða, 150m frá ströndinni í San Pedro del Pinatar. Bærinn býður upp á fullkomið úrval daglegrar þjónustu, svo sem matvörubúðir, banka, apótek, bari og veitingastaði, auk 4* hótels. Svæðið býður upp á ýmsa tómstunda- og íþróttaiðkun, svo sem siglingar, vatnaíþróttir á ströndum Mar Menor, gönguferðir í nærliggjandi fjöll eða golf.
Kjarninn samanstendur af íbúðum með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, ýmist á jarðhæð, miðhæð eða þakíbúð, sem eru fáanlegar af mismunandi gerðum. Allar íbúðirnar eru með opinni setustofu, borðkrók og eldhúsi, og útgengi á litla verönd. Sameiginlegt svæði og sundlaug eru á þaki samstæðunnar. Þá er kjallari með geymslum og bílastæðum sem festa má kaup á gegn aukagjaldi.
Íbúðirnar eru afhentar með foruppsetningu fyrir loftkælingu, innbyggðum fataskápum, eldhústækjum, inni og úti LED lýsingu og myndavélardyrasíma.Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum