Íbúð á jarðhæð nálægt ströndinni í San Pedro del Pinatar

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

frá 30,012,495 kr
frá 199.950€

2

2

63.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5028899

Nútímalegur íbúðakjarni í miðju bæjarins San Pedro del Pinatar, sem er innan við 2 km frá fallegu ströndum Mar Menor. Bærinn sem er á Murcia ströndinni býður mikla þjónustu, s.s. apótek, matvöruverslanir, skóla, bari/kaffihús og veitingastaði osfrv. Stutt er í AP-7 hraðbrautina og N332 þjóðveginn svo auðvelt er að komast á milli staða, eins og til Costa Cálida, Murica og Cartagena, sem og á alla Costa Blanca ströndina, þ.á.m. til Pilar del la Horadada, Orihuela Costa og Torrevieja. Kjarninn er í um 25 mínútna akstursfjarlægð frá flugvellinum í Murcia og um 55 mínútum frá flugvellinum í Alicante.

Kjarninn býður upp á íbúðir sem eru með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum í tveimur útgáfum; jarðhæðir með yfirbyggðri verönd og efri hæðir með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með opnu skipulagi og opnast stofan út á verönd. Hjónaherbergið er með baðherbergi innaf. Íbúðunum fylgir tengi fyrir loftkælingu, eldhústæki, LED inni- og útilýsing og bílastæði á sameiginlegu bílstæði.

Sameiginlega svæðið er með sundlaug, fallegum garði og bílastæði. Með tilliti til staðsetningar, verðs og gæða eru þessar íbúðir kjörnar sem orlofsstaður jafnt sem heimili.

See more...

  • verönd
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
  • sameiginleg bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.

Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.

  • 29 km
  • 8 km
  • 30 km
  • 2 km
  • 16 km
  • 12 km

Nánari upplýsingar um San Pedro - Lo Pagan

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.