Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
REF 3925475
Einbýlishúsakjarni, aðeins 1 km frá ströndum San Javier, við Costa Cálida. Bærinn býður upp á mikið úrval daglegrar þjónustu, allt árið um kring, svo sem matvöruverslanir, verslanir, bari og veitingastaði, auk Dos Mares verslunarmiðstöðvarinnar. Mar Menor strendurnar bjóða upp á skemmtilega „chiringuitos“ (strandbari) og vatnaíþróttastarfsemi. Önnur útivist er enn fremur í boði á svæðinu; svo sem siglingar, hjólreiðar og golf. Svæðið býr ennfremur að hraðbrautaneti sem tengir það við stórborgir eins og Murcia, Cartagena og Alicante.
Kjarninn samanstendur af parhúsum með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, byggð á tveimur hæðum auk þakverandar. Skipulag jarðhæðar og stórar glerhurðar í stofu, skapa rúmgott og bjart alrými, með borðstofu og eldhúsi. Hjónaherbergi og baðherbergi má einnig finna á jarðhæð en 2 svefnherbergi eru á efri hæð (annað þeirra með sér verönd) ásamt sameiginlegu baðherbergi. Rúmgóð þakveröndin er tilvalin til að njóta lífsins úti við.
Í kjarnanum er einnig einbýlishús með en-suite svefnherbergi á jarðhæð og 2 en-suite svefnherbergjum á efri hæð, með aðgangi að sameiginlegri verönd með útsýni yfir sundlaugina.
Húsunum fylgir foruppsetning fyrir loftkælingu, innbyggðir fataskápar, eldhústæki, inni og úti LED lýsing, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum