Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
Þessi eign er ekki í boði
REF 3538761
Lúxus einbýlishús með frábæru útsýni yfir sjóinn, inní landi við Benissa. Svæðið er staðsett milli bæjanna Calpe og Moraira, þar sem fullkomið úrval af daglegri þjónustu er í boði, eins og stórmarkaðir, verslanir, bankar, apótek, alþjóðlegur skóli, barir og veitingastaðir. Í næsta nágrenni má nálgast tómstundastarf, eins og golf, gönguferðir og sjómennsku í Benissa og Calpe. Tilvalin staðsetning til að slaka á í, í náttúrulegu umhverfi, með þægindum borgarinnar skammt frá.
Eignin er með 4 en-suite svefnherbergjum og byggð á glæsilegri 1.565m2 lóð. Aðalhæðin samanstendur af rúmgóðri stofu, borðkrók og fullbúnu eldhúsi og alrýmið opnast út á stóra verönd með infinity sundlaug, þar sem hægt er að njóta lífsins. Hjónaherbergið er með en suite baðherbergi og fataherbergi og má einnig finna á aðalhæð hússins ásamt gestasnyrtingu. Á efri hæð eru þrjú en-suite svefnherbergi sem opnast út á sameiginlega verönd, sem og opið svæði með sér verönd, sem hægt er að nota eftir þörfum. Tvö aukaherbergi eru í kjallara en þau má nýta sem líkamsræktaraðstöðu, heimaskrifstofu eða viðbótar svefnherbergi.
Eignin er hönnuð með birtu og náttúrulegt útlit í huga, með stórum glerhurðum og frágangi með viði og náttúrlegum steini auk þess sem garðurinn er prýddur Miðjarðarhafsplöntum. Innifalið í kaupunum er foruppsetning fyrir loftkælingu, eldhústæki, gólfhiti í allri eigninni, innbyggðir fataskápar, lyfta sem tengir þrjár hæðir, sundlaug og bílastæði á lóð.Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
Á milli hafs og fjalla er Benissa að finna, fallegt þorp á norður Costa Blanca en á svæðinu eru paradísarvíkur með kristaltæru vatni, fullkomnar fyrir íþróttir eins og köfun, seglbretti eða seglbáta. Einnig er hægt að njóta gönguferða í Benissa sem er umkringt fjöllum og hlíðum.
Benissa er talinn vera einn af þessum útvöldu áfangastöðum við Miðjarðarhafsströndina og fasteignaúrvalið ber sannarlega merki þess, því einkennandi eru lúxuseinbýli. Skoðið fasteignaframboðið í Benissa.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum