Hönnunarhús með sundlaug og sjávarútsýni í Fuengirola

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

frá 510,340,000 kr
frá 3.400.000€

4

4

625.21 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5071076

Einstakur íbúakjarni með íbúðum og húsum nálægt Fuengirola á Costa del Sol. Upphækkuð lóðin tryggir útsýni yfir Miðjarðarhafið. Frábær staðsetning með mikilli náttúrufegurð og vel hirtum grænum svæðum, eingöngu 5 mínútum frá ströndinni og 10 mínútum frá miðbæ Fuengirola og öllu því sem hún hefur upp á bjóða. Aðrar borgir eins og Benalmadena og Malaga eru í um 20 og 25 mínútna fjarlægð. Flugvöllurinn í Malaga er í um 15 mínútna fjarlægð.

Kjarninn býður lúxus íbúðir og þakíbúðir með þakverönd, bæði með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, auk frábærra húsa með 4 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum.

Nýstárleg hönnunin tryggir vel nýtt rými og opið skipulag en svefnherbergi sem eru örlítið sér. Stórir gluggarnir tryggja mikla birtu og gera meira úr útsýninu. Hjónasvítan er með baðherbergi og frístandandi baðkari.

Húsin eru á tveimur eða þremur hæðum, og eru með opið skipulag fyrir eldhúsið, stofuna og borðstofuna. Útisvæðið er með verönd, garði og sundlaug sem er kjörið til að njóta veðurblíðunnar á Costa del Sol. Hjónasvítan er með baðherbergi inn af. Húsin sem eru á 3 hæðum eru með heila hæð fyrir hjónasvítuna. Húsin eru einnig með spa svæði með saunu og heitum potti, vínkjallara og bíósal.

Öll húsin eru vel hönnuð og byggð úr úrvals efnum eins og onyx, steini og við. Þeim fylgir vel útbúið eldhús, loftkæling sem bæði hitar og kælir, gólfhiti á öllum gólfum, inni- og úti húsgögn, Smart kerfi, öryggiskerfi og peningaskápur. Allar íbúðir eru með heitan pott á veröndinni, en þakíbúðirnar og húsin eru með “infinity” sundlaug með LED lýsingu.

Kjarninn er með góð sameiginleg svæði, eins og sportklúbb, spa, nudd aðstöðu, veitingastað með Michelin stjörnu, sal og frábæran strandklúbb. Þá er brytaþjónusta sem er aðgengileg í gegnum smáforrit.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • afgirt bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.  

Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.

Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu. 

  • 19 km
  • 5 km
  • 5 km
  • 1 km
  • 4 km
  • 4 km

Nánari upplýsingar um Fuengirola

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.