Costa Blanca Norður, Marina Alta, Marina Alta Inland
REF 3048905
Nýr kjarni einbýlishúsa í íbúðarhverfi við bæinn Orba. Orba tilheyrir Marina Alta og er sjarmerandi lítill bær milli sjávar og fjalla. Þar má njóta náttúrunnar og taka lífinu með ró án þess að fórna nálægð við þjónustu en stærsta verslunarmiðstöðin á svæðinu er aðeins 15 mínútur í burtu og borgirnar Dénia og Jávea með stórkostlegum ströndum eru í aðeins 20 og 30 mínútna akstursfjarlægð. Flugvöllurinn í Alicante er í klukkustundar fjarlægð frá bænum. Boðið er uppá mismunandi gerðir af einbýlishúsum, en öll eru þau á einni hæð og byggð á stórum lóðum eða yfir 800 m2. Hægt er að velja um ýmislegt þegar hús er pantað en algengasta formið eru 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, nútíma eldhús og björt og rúmgóð stofa/borðstofa með stórum gluggum sem bjóða heim fallegu útsýni yfir dalinn eða hafið. Öll húsin hafa stórar verandir og garða og með sumum þeirra fylgir einkasundlaug.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Marina Alta Inland
Marina Alta er nyrðsti hluti Costa Blanca strandlengjunnar en Dénia er þar höfuðborg. Þorpin í Marina Alta standa milli fjalla og akra, svo sem víngarða, möndlutrjáa og annarrar ávaxtaræktunar.
Margir litlir bæir á svæðinu bjóða uppá helling af sögu og hefðum, umkringd fjöllunum í rólegum íbúðahverfum sem einkennast af einbýlishúsum með stórum lóðum og sum hver með útsýni yfir hafið. Þetta á við um bæi eins og Jalón, Orba, Alcalali, Pedreguer og marga aðra en þarna má njóta hins einstaka lífsstíls sem Miðjarðarhafsbúar státa sig af. Í Marina Alta er mjög góð þjónusta, svo sem alþjóðlegir skólar og heilsugæsla en þar má nefna mjög gott sjúkrahús í Dénia sjálfri sem dæmi. Þetta svæði Spánar er enn fremur þekkt fyrir að búa að einu heilnæmasta loftslaginu samkvæmt WHO (World Health Organization).
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum