Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Þessi eign er ekki í boði
REF 3079396
Nýr kjarni einbýlishúsa í Finestrat, við norður Costa Blanca. Aðeins nokkurra mínútna akstur er til La Marina verslanamiðstöðvarinnar með fjölbreyttu úrvali daglegra nauðsynja. Borgin Benidorm, með fjölbreyttri afþreyingaraðstöðu, veitingastöðum, skemmtigörðum og glæsilegum ströndum, er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Tilvalin staðsetning til að njóta lífsins við Miðjarðarhafið, í friðsælu umhverfi, en samt nálægt allri þjónustu í borginni.
Tveggja hæða einbýlishús, byggð á lóðum frá 318 til 394m2, með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og þakverönd. Velja má um hús með eða án kjallara. Stofa, eldhús og borðstofa opnast út á veröndina, garðinn og sundlaugarsvæðið og á jarðhæð má finna hjónaherbergi og baðherbergi en 2 en-suite svefnherbergi eru á efri hæð. Njóta má útsýnis yfir Benidorm og Miðjarðarhafið frá rúmgóðri þakverönd á húsunum.
Þar sem kjallari er til staðar má ganga í hann bæði innúr húsinu og utanfrá af fallegri verönd. Kjallarinn samanstendur af þvottahúsi, geymslu og fjölnota herbergi sem nýta má sem setustofu, leikherbergi, auka svefnherbergi, skrifstofu eða fyrir líkamsræktaraðstöðu.
Eignunum fylgir loftkæling/hitun, fataskápar, einkasundlaug, myndavélardyrasími og bílastæði á lóð. Í húsum þar sem kjallari er ekki innifalinn má biðja um hann að auki, fáðu verðtilboð án skuldbindinga!
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Finestrat er einn af bæjunum í Alicante-héraði sem sameinar kjarna svæðisins: sjó og fjöll.
Finestrat þýðir fjall, vegna þess að söguleg miðbær bæjarins liggur við rætur hins glæsilega Puig Campana, sem er tvímælalaust sá tindur sem hefur mestan karakter í öllu héraðinu. Finestrat er líka Miðjarðarhafið; fleyglaga bæjarsvæðið nær allt að ströndinni við Cala Morales, almennt þekkt sem Cala de Finestrat.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum