Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Þessi eign er ekki í boði
REF 2132683
Einbýlishús með sundlaug í Polop, vinsælli staðsetningu við norður Costa Blanca, í fjöllunum, með útsýni yfir Benidorm. Stutt er að aka til bæja á svæðinu, þar sem finna má alla nauðsynlega þjónustu. Benidorm er í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð, með fallegum ströndum og skemmtigörðum. Tilvalin staðsetning til að njóta náttúrunnar, en vera þó nálægt þægindum borgarinnar.
Í boði eru tveggja hæða einbýlishús á lóðum milli 300m2 og 359m2, með 3 eða 4 svefnherbergjum og 3 eða 4 baðherbergjum. Velja má milli tveggja gerða, með 1 eða 2 svefnherbergjum á jarðhæð. Á jarðhæð er stór, opin stofa, amerískt eldhús og borðstofa, með beinum aðgangi að garðinum og sundlauginni. Önnur svefnherbergi eru á efri hæð, með eigin baðherbergi og aðgangi að rúmgóðri verönd með útsýni yfir garðinn og sundlaugina.
Hverri eign fylgir loftkæling/hitun, eldhústæki, frágenginn garður, rafknúin hlið, einkasundlaug og bílastæði á lóð. Mögulegt er að bæta við svefnherbergi og baðherbergi á efri hæð.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Polop er lítið þorp í Alicante-héraði í um 20 mín. fjarlægð frá stöndinni og Benidorm.
Fyrir þá sem leita að fasteign á Costa Blanca, á rólegum stað og í náttúrulegu umhverfi, en um leið stutt frá allri þjónustu, er Polop fullkominn kostur. Hér má sjá fasteignir í Polop:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum