Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Þessi eign er ekki í boði
REF 2216323
Nýr kjarni einbýlishúsa í Polop, við rætur fjallsins Ponoig, við norður Costa Blanca. Í stuttri akstursfjarlægð má finna verslanakjarna, þar sem allar daglegar nauðsynjar eru í boði. Borgin Benidorm, með frábærum ströndum, skemmtigörðum og annarri afþreyingu, er aðeins í 12 km fjarlægð.
Kjarninn er byggður í hlíð sem þýðir að húsin búa að gríðarfallegu útsýni yfir hafið. Öll húsin hafa opna stofu, eldhús og borðstofu sem opnast útá stóra verönd og garð. Velja má um tvær tegundir húsa; á einni hæð með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og tveggja hæða hús með 3 svefnherbergjum og 2-3 baðherbergjum og gestasalerni. Öll einbýlishúsin koma með loftkælingu/hitun, garði með gervigrasi, lagt er fyrir sólarorku, einkabílastæði er á lóð og möguleiki á hleðsluaðstöðu fyrir rafbíla.
Hægt er að velja um ákveðnar breytingar á hverju húsi, með möguleika á sundlaug og/eða þakverönd, svo eitthvað sé nefnt.
Kjarninn er lokaður af með hliði og öryggismyndavél er sett upp. Á sameiginlegu svæði er sundlaug fyrir fullorðna og börn, garðsvæði, leiksvæði fyrir börn, félagsaðstaða og aðstaða til líkamsræktar.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Polop er lítið þorp í Alicante-héraði í um 20 mín. fjarlægð frá stöndinni og Benidorm.
Fyrir þá sem leita að fasteign á Costa Blanca, á rólegum stað og í náttúrulegu umhverfi, en um leið stutt frá allri þjónustu, er Polop fullkominn kostur. Hér má sjá fasteignir í Polop:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum