Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 250151
Einbýlishús á rólegu svæði í Ciudad Quesada, mjög vinsælu hverfi þar sem öll þjónusta og alls kyns dægradvöl er í boði; svo sem verslanir, vatnsgarður og golfvöllur og í fimm mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Guardamar og Torrevieja. Í boði eru 2 tegundir af húsum; hús á 2 hæðum þar sem velja má um 3 eða 4 svefnherbergi, og hús á einni hæð með 4 svefnherbergjum. Öll húsin hafa 3 baðherbergi, opna og bjarta stofu og borðstofu, nútímaeldhús í amerískum stíl, verönd og þakverönd. Útisvæði er stórt og eru húsin afhent með garði, bílastæði á lóðinni og einkasundlaug. Loftkæling er innifalin.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum