Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Los Montesinos
REF 3254305
Nýr kjarni einbýlishúsa í La Herrada, Los Montesinos. Í göngufæri frá miðbænum og allri nauðsynlegri þjónustu. Aðeins nokkurra mínútna akstur er til Ciudad Quesada, og í 5 mínútna akstursfjarlægð má finna borgina Torrevieja. Strendur Guardamar eru í aðeins 10 mínútna fjarlægð með bíl.
Í kjarnanum eru í boði einbýlishús sem snúa til suðurs, byggð á lóðum á bilinu 367m2-536m2. Velja má milli einbýlishúsa með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, á einni eða tveimur hæðum; eða einbýlishús með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, á tveimur hæðum. Öll húsin hafa rúmgóða stofu, borðstofu og eldhús en úr alrými er aðgangur að tveimur veröndum, garðinum og sundlaugarsvæðinu. Öll hjónaherbergin eru með sér baðherbergi.
Hágæða efni eru notuð við byggingu húsanna og þau afhent með loftkælingu, eldhústækjum, gólfhita á baðherbergjum, lýsingu, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Los Montesinos
Los Montesinos er lítið þorp við Suður Costa Blanca, í um 10 mín. akstursfjarlægð frá Torrevieja.
Þetta er fullkomið þorp fyrir þá sem vilja setjast að, með allri nauðsynlegri þjónustu, umkringt ökrum og nálægt ströndinni. Skoðið fasteignaframboðið í Los Montesinos:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum