Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 3070707
Nýr kjarni einbýlishúsa í Villamartín, aðeins nokkrar mínútur frá Villamartín Plaza og golfvellinum sjálfum. Aðeins 3 km eru að Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni og húsin standa nálægt ströndum Orihuela Costa.
Velja má um einbýlishús eða tengd hús og mismunandi lóðarstærðir. Húsin eru á tveimur hæðum með þakverönd og búin rúmgóðri og bjartri stofu/borðstofu og eldhúsi, 3 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum ásamt veröndum. Frágenginn garður, einkasundlaug og bílastæði á lóð fylgir hverri eign.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum