Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 3077132
Raðhúsakjarni í Villamartin, vinsælu svæði við Orihuela Costa. Nálægt golfvellinum og verslunum, börum og veitingastöðum. Í stuttri akstursfjarlægð eru stórkostlegar strendur Orihuela Costa og Torrevieja, sem og verslunarmiðstöðin, Zenia Boulevard.
Nútímaleg raðhús á tveimur hæðum, með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Á jarðhæð er nútímalegt eldhús, borðkrókur og opin stofa með tvöfaldri lofthæð en þaðan er gengið útá verönd. Hjónaherbergi og baðherbergi má enn fremur finna á jarðhæð. Á efri hæð húsanna eru 1 eða 2 svefnherbergi, eftir því sem fólk kýs. Sameiginlegt svæði hefur stóra sundlaug og garð.
Eignirnar eru byggðar með gæðaefnum og húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu/hitun. Innbyggðir fataskápar og bílastæði á lóð fylgja.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum