Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 3039756
Ný einbýlishús í Pilar de la Horadada, bæ við suður Costa Blanca, þar sem öll nauðsynleg þjónusta er innan seilingar og aðeins 1,5 km eru að strönd. Bærinn stendur nálægt A-7 þjóðveginum og N-332 og er þannig mjög vel tengdur við nærliggjandi svæði og borgir, eins og Orihuela Costa og Torrevieja.
Húsin eru byggð á 2 hæðum. Á jarðhæð er svefnherbergi, baðherbergi, nútíma eldhús og opin og björt stofa. Á efri hæðinni eru 2 svefnherbergi, annað þeirra með fataherbergi, baðherbergi og verönd.
Húsin eru byggð á allt að 229.61m2 lóðum og hafa garð, einkasundlaug með innbyggðum nuddpotti og bílastæði á lóð. Eignirnar eru klárar fyrir uppsetningu á loftkæingu og gólfhiti er á baðherbergjum. Mögulegt er að bæta þakverönd við.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum