Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Fulgencio-La Marina
Þessi eign er ekki í boði
REF 2037139
Nýr kjarni parhúsa í La Marina, San Fulgencio við suður Costa Blanca. Nálægt allri nauðsynlegri þjónustu, og í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá sandströnd La Marina og Guardamar del Segura.
Húsin eru byggð á lóðum frá 226m2-306m2 að stærð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Rúmgóð stofa, eldhús og borðstofa eru í húsunum en úr stofu er gengið útá verönd og sundlaugarsvæði. Tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús eru enn fremur á jarðhæð. Hjónaherbergi er á efri hæð, með sér baðherbergi, og aðgangi að stórri verönd, með útsýni yfir sundlaugina.
Öll húsin eru klár fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, þeim fylgir myndavéladyrasími og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Fulgencio-La Marina
San Fulgencio, á milli Guardamar og Santa Pola, í sunnanverðu Alicante-héraði er bær þar sem finna má íbúðabyggð sem þekkist undir nafninu Urbanización La Marina. Í aðeins 6 km. fjarlægð frá ströndu er hér að finna frábært fasteignaframboð með fullkominni þjónustu og innviðum.
Einbýli og raðhús eru vinsælust í Urbanización La Marina sem býður upp á ein bestu gæðin miðað við verð á allri Costa Blanca. Skoðið fasteignaframboðið í San Fulgencio-La Marina:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum