Þessi eign er ekki í boði
REF 203396
Ný einbýlishús, staðsett í rólegu íbúðarhverfi í hinum fallega bæ La Nucía, 5 km frá ströndum Altea og í 20 mínútna akstursfjarlægð frá borginni Benidorm.
Húsin eru seld af teikningum og því möguleiki á að sníða eignina að þörfum kaupandans en lóðirnar eru meira en 600 m2 að stærð. Í boði eru stöðluð módel með 3 svefnherbergjum á einni hæð og módel með 4 svefnherbergjum á tveimur hæðum. Allar breytingar eru mögulegar.
La Nucía er lítið fjallaþorp í 3ja km. metra fjarlægð frá Altea og 8 km. fjarlægð frá Benidorm. Staðsetning þorpsins gerir að verkum að það býr að öllum þeim töfrum sem hefðbundin þorp við Miðjarðarhafið hafa að geyma, fallegri náttúru og óviðjafnanlegu útsýni.
Fasteignaframboðið í La Nucía samanstendur aðallega af einbýlum og því er staðurinn fullkominn fyrir þá sem leita að rúmgóðu húsi á góðu verði, nálægt sjónum. Skoðið fasteignaframboðið í La Nucía
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum