Costa Cálida, Mar Menor, Cartagena Litoral Levante, Mar de Cristal
Þessi eign er ekki í boði
REF 3833685
Ný einbýlishús, 500m frá ströndinni í strandbænum Mar de Cristal, við Costa Cálida. Bærinn býður upp á mikið úrval af daglegum nauðsynjum og veitingastöðum allt árið um kring. Ýmis afþreying er í boði fyrir íþróttaáhugamenn, eins og siglingar, köfun og gönguferðir, auk nokkurra golfvalla í stuttri fjarlægð. Hraðbrautin tengir svæðið við nágrannaborgirnar Murcia og Cartagena, auk Alicante í norðri.
Nútíma einbýlishús á einni hæð ásamt þakverönd, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, byggð á 310m2 lóðum. Opin stofa, borðstofa og eldhús eru í húsunum og alrýmið opnast útá tvær aðskildar verandir. Hjónaherbergi er með sér baðherbergi og fataherbergi. Aðalveröndin er yfirbyggð að hluta og býður upp á hið fullkomna rými til að njóta útiverunnar við sundlaugina. Þakveröndin býður upp á víðáttumikið útsýni yfir svæðið og hægt er að nálgast hana um ytri stiga úr garðinum sem er í Miðjarðarhafsstíl.
Húsunum fylgir foruppsetning fyrir loftkælingu, innbyggðir fataskápar, þvottahús, fullfrágenginn garður, einkasundlaug og bílastæði á lóð fyrir allt að tvo bíla.Costa Cálida, Mar Menor, Cartagena Litoral Levante, Mar de Cristal
Mar de Cristal tilheyrir Cartagena eins og áður segir. Ströndin þar er þekkt fyrir tært vatnið eins og nafnið gefur til kynna en Cristal þýðir gler.
Ströndin hefur oftast verið heiðruð með Bláa Flagginu af öllum ströndum Murcia. Fyrir frábæra staðsetningu og fyrirtaks veðurfar, er Mar de Cristal álitin standa fremst í flokki, bæði hvað varðar sumarleyfisdvalarstað og þegar kaupa skal fasteign erlendis, nánar tiltekið í Murcia héraði. Þar er framboð þjónustu mjög gott, með veitingastöðum, verslunum, aðstöðu til íþróttaiðkana og öllu öðru sem nauðsynlegt er þegar fólk kemur sér upp heimili á Spáni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum