Costa Cálida, Mar Menor, La Manga
Þessi eign er ekki í boði
REF 4936152
Íbúð við strönd sem er tilbúin til afhendingar með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og verönd með stórkostlegu sjávarútsýni. Eignin er fullbúin húsgögnum og henni fylgir bílastæði í bílakjallara.
Í kjarnanum er sameiginlegt svæði með fjölbreyttu úrvali dægrastyttingar, bæði innan dyra og utan. Stórir garðar, fuglaskoðunarherbergi, svæði fyrir gæludýr, hvíldarsvæði, skápar þar sem geyma má strandútbúnað og aðstaða til íþróttaiðkana fyrir alla aldurshópa; svo sem hlaupabraut, blakvöllur á ströndinni og líkamsræktarstöð eru hluti af aðstöðunni ásamt leiksvæði fyrir litlu börnin og rólegum stöðum til að lesa. Sundlaugin er náttúruleg með sandi. Innan dyra má nefna stórkostlega heilsulind til hvíldar, herbergi með nettengingu, sælkerasal og bílastæði fyrir reiðhjól. Eignirnar og sameiginlega svæðið er hannað í takt við náttúrulegt umhverfi og sérstakrar varúðar gætt varðandi það að nýta náttúruleg efni sem best og huga að orkunýtingu.
Costa Cálida, Mar Menor, La Manga
La Manga del Mar Menor er gæðamerki í ferðamennsku við Costa de Murcia. Hvítar sandstrendur, tært hafið og mikið úrval þjónustu og dægradvalar eru gæðastimplar svæðisins.
Þrátt fyrir ferðamennsku og það sem henni tilheyrir má enn finna ósnortin svæði í náttúrunni til að njóta. Sérstakt landslagið, 24 km strengur sem skilur Miðjarðarhafið frá Mar Menor, gerir La Manga að fáum stöðum í heiminum þar sem hægt er að baða sig í tveimur höfum og fylgjast með bæði sólarupprás og sólsetri við sjóndeildarhringinn. Framboðið af fasteignum við þennan sérstaka stað einkennist af eignum með stórkostlegu útsýni yfir hafið og aðeins steinsnar frá ströndinni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum